2015!
Árið sem allir mistu sig í contur og highlight!
Klárlega var það MaryLou sem allir voru að tala um.
En 2015 var líka árið sem ég áttaði mig á því hvað mig langar að verða þegar ég verð stór!
Og það tengist allt beauty, förðun, hári, tísku og lífstíl!
En þessi færsla er ekki um það heldur uppáhalds snyrtivörur árið 2015.
Þetta eru vörur sem ég prófaði í fyrsta skipti á árinu.
Ég ætla að reyna að hafa eina vöru í hverjum flokki.
Byrjum á primer.
Hann er frá Gosh og heitir
Primer Plush.
Hann veitir góðann raka og blurar aðeins svitaholurnar mínar.
En mínar svitaholur eru óþolandi þær eru svo sjáanlegar og pirrandi en það þyrfti öruglega sement til þess að fela þær almennilega.
En mér finnst hann gera margt fyrir húðina mína, auðveldar mér blöndun á farða og hann stíflar ekki svitaholurnar, þar að leiðandi fæ ég sjaldan bólur.
Uppáhalds farði.
Það er klárlega Infallible Pro Matte frá L'oreal.
Ég nota litin númer 12 Natural Rose.
Eini ókosturinn finnst mér vera frekar þurkandi svona þegar líða fór á veturinn.
En þá keypti ég mér Infallible sem er með olíunni en hann er alveg eins finnst mér nema hann
er ekki mattaður og er að gera góða hluti en ég er enþá að prófan og keypti hann á gamlársdag þannig ég tel hann ekki með í þessa færslu.
Uppáhalds maskari.
Það kemur kannski ekki neinum á óvart en það er undur og stórmerkið frá Maubelline Sensational mascara.
Burstinn er bogin og úr plasti og er bara súper góður.
Hann er eini maskarinn sem ég hef einhverntímann síðan ég var svona 15 ára geta notað bara einn og sér en ekki þurft að nota svona 5 maskara í einu.
En þetta er svona eina þrennan sem mig langar að tala ýttarlega um en annars er myndin hérna að ofan sem að er með öllum mínu uppáhalds síðasta árs.
- Anna Margrét Sveins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli