fimmtudagur, 11. febrúar 2016

Vefverslana blaður+ smá óskalisti

Eins og öruglega flestir vita þá hafa snyrtivöru vefverslanir orðnar alveg slatta margar,
og finnst mér flestar vera farnar að selja það sama.
Ef þið eruð að spá í fjárfesta í snyrtivöru án djóks skoðið allar síðurnar sem selja þá vöru sem ykkur langar í.
Farið yfir verðin og kaupið það ódýrasta.
Jafnvel skoða erlendar vefverslanir.
Þótt það taki einhvern tíma að fá það til landsins og kostar einhvernn toll og gjöld
þá er það stundum þess virði.

Ég var til dæmis að skoða um daginn afþví mig langar svo í þessa
Anastasia Beverly Hills Pro brow palletu. 
Nola.is er með hana á sérpönntunar lista hjá sér síðast þegar ég vissi og kostar næstum því 25 þúsund.
Svo fór ég að skoða erlendar síður og fann hana á Beauty Bay og þar kostar hún 109,40 evrur sem eru rúmlega 15.700 íslenskar krónur.
Svo fann ég hana líka á Cult beauty og hún kostar þar 90 pund sem eru rúmlega 16.500 íslenskar krónur.
Inná Cult beauty þá er frí sending ef það er verslað fyrir meira en 50 pund og á Beauty Bay er frí sending ef það er verslað fyrir meira en 20 evrur minnir mig.
Það er margt þarna sem hægt er að versla og er mikið úrval af vörum sem fást ekki hérna á Íslandi og það eru mikið af fríðindum sem fylgja því að versla á til dæmis Cult beauty. 
Til dæmis: Ef þú verslar fyrir eitthvað ákveðið mikið þá geturu valið þér einhverja ,,prufu'' af vöru. Þá er það einhverskonar vara alveg sama hvað það er sem þú getur valið þér sem er í prufu stærð, eins og til dæms Solid beautyblender sápan.
Ég hef ekki kynnt mér það hvort það séu einhverjar svona prufur sem fylgja sendingum á beauty bay. 
En svona þarf maður helst að gera alveg sama hvort það séu erlendar eða íslenskar netverslanir að skoða verðin og bera saman. 
Inná báðum síðunum fæst primer frá Stila cosmetics sem mig langar svo í.
Þessi primer er búin að vera á óskalistanum í svo laangann tíma.
Hann bæði preppar húðina fyrir farða og er litaleiðréttari.
Inná cult beauty kostar hann 24 pund eða 4400 íslenskar.
Inná beautybay kostar hann 29,20 evrur eða 4200 íslenskar.
Niðurstaða Beauty Bay er ódýrara en Cult Beaty.


Morphe fæst líka á báðum síðunum og eru stóru augnskugga palleturnar að kosta kannski 3000 krónur íslenskar.
En hérna heima á Fotia.is kosta þær frá 4990- 5990 kr.
Á óskalistanum er 35O, 35K og 35P.
35P

35O

35K

Þær eru svo rosalega fallegar, ég dey!

Ætla að benda á nokkrar íslenskar vefverslanir


Það eru eflaust til margar fleiri en þessar eru svona sem mig dettur í hug núna.

Fleira er það ekki að sinni.

Minni ykkur á
Snapchat annzy93
Instagram annamsmua
Facebook

- Anna Margrét Sveins.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli