Jæja hérna kemur mánaðarlega færslan um uppáhalds vörur og tól í febrúar.
Að þessu sinni var nú ekki margt sem var í uppáhaldi ekki alvega sem stóð mikið uppúr.
Vörurnar síðan í janúar eru enþá uppáhalds enda nota ég þær mikið, en ekki eins mikið og hefði getað gert þar sem ég málaði mig sama og ekki neitt í febrúar.
Dembum okkur bara í þetta.
Þessi færsla er ekki kostuð.
Það eru fjórar vörur sem stóðu mest uppúr en ég var svona hægt og rólega en þær eru algjörlega í uppáhaldi hjá mér núna.
Fyrst er það Fix+ frá MAC.
Ég gjörsamlega elska þetta.
Ég nota þetta bæði til þess að geta festa glimmer og til þess að bleyta upp í augnskuggum til þess að fá þá litinn sterkari.
Hef verið að nota þetta líka á kúnna eftir ég hreinsa húðina og set raka, geri það sama við sjálfa mig og ég verð bara að segja það verða allir að eignast Fix+.
Eflaust er hægt að finna eitthvað annað sem er ódýrara en ég fékk mágkonu mína til þess að kaupa þetta fyrir mig úti í Bandaríkjunum.
Blue Lagoon varasalvinn er bara sá besti sem ég hef prófað fyrir utran 15 þúsund króna varasalvinn sem ég hef prófað haha.
En þessi varasalvi er aðeins í dýrari kanntinum en hann kostar 3500 krónur en hann er rakagefandi og nærandi fyrir varirnar og þörungarnir í honum örva kollagenframleiðslu og veita líka fallega og heilbrigða áferð á varirnar.
Hann er ofnæmisprófaður og án allra lita og parabena efna.
L'oréal Paris Brow Artist Plumber
Ég elska þetta litaða augabrúna gel. Það er með fiber svo að það gefur fyllingu í augabrúnirnar og gefur líka smá lit á sama tíma.
Ég nota lit númer 04 sem heitir Dark Brunette.
Real Techniques Shading Brush hann er í algjöru uppáhaldi.
Eins og allir Real Techniques brustarnir sem ég á.
Mér finnst hann fullkominn í að setja augnskugga undir augun og í innri augnkrók.
En fleira var það nú ekki fyrir febrúar mánuðinn.
Hann var frekar lásí af förðunarfræðingi að gera.
Lítið á snapchat og lítið hér og á Instagram.
En það fer nú að breytast með hækkandi sól og hlínandi veðri.
En núna næstu vikur allavega eða jafnvel bara næstu daga koma færslur með til dæmis nýjum vörum sem ég var að eigna mér og fleira.
Endilega eltið mig
á Snapchat og Instagram
anny93 og
https://www.instagram.com/annamsmua/
- Anna Margrét Sveins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli