þriðjudagur, 8. mars 2016

Nivea After Shave Balm!

Já kannski takið þið eftir því að bloggið fékk smá facelift enda veitti ekki af.
En myndirnar í banernum eru myndirnar úr lokaprófinu mínu í MOOD.

En allavega að öðru.
Þá prófaði ég í dag Nivea After Shave Balm



Hún elsku Nikkie Tutorials var sú fyrsta sem kom þessu í trend.
Sagan á bak við það er að henni vanntaði rakakrem og fann ekkert annað heima hjá kærastanum sínum en þetta og ákvað að prófa þetta og henni fannst farðinn haldast svo rosalega vel á andlitinu.

Sem og það gerir.
Ég er bara er í sjokki hvað hann hélst vel á. 
Ég málaði mig fyrir vinnu og notaði einn af mínum uppáhalds förðum Ifallible 24h matte foundation frá L'oréal og hann toldi rosalega vel á miðað við 8 tíma vakt í hita og allskonar dæmi sem fylgir því að vinna í sjoppu. 
En ég ætla að prófa þetta alveg hiklaust aftur bara fyrir daglega not þegar ég er ekki að vinna og ég mæli með því að þið nælið ykkur í eitt stikki ef þið þolið þar að segja nivea vörur almennt en þetta er sensetive þannig þetta er gert fyrir viðkvæma húð.
Hérna eru allar upplýsingar um vöruna, innihaldsefni og slíkt.
Það eru margir youtuberar sem eru farnir að nota þetta og eru að fíla þetta í tætlur.

Meira hef ég ekki að segja um þessa vöru nema bara hún fær 9,8 af 10 frá mér.
Þetta er það besta sem ég hef prófað fyrir undirstöðuna að góðum grunni fyrir húðina á undann farða, hyljara og öllu svoleiðis.

Minni alltaf á þetta
snapchat annzy93
Instagram annamsmua


-Anna Margrét Sveins. 

mánudagur, 7. mars 2016

Uppáhalds í febrúar

Jæja hérna kemur mánaðarlega færslan um uppáhalds vörur og tól í febrúar.
Að þessu sinni var nú ekki margt sem var í uppáhaldi ekki alvega sem stóð mikið uppúr.
Vörurnar síðan í janúar eru enþá uppáhalds enda nota ég þær mikið, en ekki eins mikið og hefði getað gert þar sem ég málaði mig sama og ekki neitt í febrúar.
Dembum okkur bara í þetta.



Þessi færsla er ekki kostuð.


Það eru fjórar vörur sem stóðu mest uppúr en ég var svona hægt og rólega en þær eru algjörlega í uppáhaldi hjá mér núna.


Fyrst er það Fix+ frá MAC.
Ég gjörsamlega elska þetta.
Ég nota þetta bæði til þess að geta festa glimmer og til þess að bleyta upp í augnskuggum til þess að fá þá litinn sterkari.
Hef verið að nota þetta líka á kúnna eftir ég hreinsa húðina og set raka, geri það sama við sjálfa mig og ég verð bara að segja það verða allir að eignast Fix+.
Eflaust er hægt að finna eitthvað annað sem er ódýrara en ég fékk mágkonu mína til þess að kaupa þetta fyrir mig úti í Bandaríkjunum.


Blue Lagoon varasalvinn er bara sá besti sem ég hef prófað fyrir utran 15 þúsund króna varasalvinn sem ég hef prófað haha.

En þessi varasalvi er aðeins í dýrari kanntinum en hann kostar 3500 krónur en hann er rakagefandi og nærandi fyrir varirnar og þörungarnir í honum örva kollagenframleiðslu og veita líka fallega og heilbrigða áferð á varirnar. 
Hann er ofnæmisprófaður og án allra lita og parabena efna.


L'oréal Paris Brow Artist Plumber
Ég elska þetta litaða augabrúna gel. Það er með fiber svo að það gefur fyllingu í augabrúnirnar og gefur líka smá lit á sama tíma. 
Ég nota lit númer 04 sem heitir Dark Brunette.



Real Techniques Shading Brush hann er í algjöru uppáhaldi.
Eins og allir Real Techniques brustarnir sem ég á.
Mér finnst hann fullkominn í að setja augnskugga undir augun og í innri augnkrók.



En fleira var það nú ekki fyrir febrúar mánuðinn.
Hann var frekar lásí af förðunarfræðingi að gera.
Lítið á snapchat og lítið hér og á Instagram.
En það fer nú að breytast með hækkandi sól og hlínandi veðri.
En núna næstu vikur allavega eða jafnvel bara næstu daga koma færslur með til dæmis nýjum vörum sem ég var að eigna mér og fleira.

Endilega eltið mig 
á Snapchat og Instagram

anny93 og
https://www.instagram.com/annamsmua/

- Anna Margrét Sveins.








mánudagur, 22. febrúar 2016

20 spurninga Makeup tag

Ég ætlaði að svara þessum spurningum munnlega en mig langaði bara svo mikið að gera þessa rafræna.
En þetta er 20 spurningar um makeup og ætla ég að svara þeim mjög hreinskilningslega.

Þessi færsla er ekki kostuð

En þær eru á ensku og ég einfaldlega nenni engann vegin að þýða þær en ég ætla að svara þeim á Íslensku.

1. Do you remember your first makeup item?
Já það var maskari sem mamma keypti fyrir mig og hann fékkst þá í Tiger.
Ég veit alveg frábær gæði þá var Tiger kölluð 200 kallabúðin allavega man ég eftir því þannig vegna þess flest allt ef ekki allt kostaði 200 krónur.
2. Describe your perfect mascara. Have you found one that fits your specifications?
Já ég hef fundið þann fullkomna maskara. Það er Maybelline Lash sensational mascara.
Hann er með bognum bursta úr plasti og er bara fullkominn. Alveg svartur og þykkir vel og lengir.
3. What kind of coverage do you prefer from foundation?
Það er svo misjafnt. En yfirleitt myndi ég helst full coverage en annars er ég sátt með miðlungs þekju.
BB krem eða CC krem eru ekki ég. Ég er með mikilar og opnar svitaholur og það henntar mér ekki ef ég ætla að vera með farða yfir höfuð.
4. Favorite high end brand?
Þetta ætti ekki vera neitt vandamál við þessa spurningu en ég á bara rosalega lítið af high end vörum. Fyrir utan MAC. Ég á farða, augnskugga og varaliti fra Clarins og finnst það mjög gott merki og MAC er það líka það sem ég hef prófað en það er svooo margt sem fæst í svona high end merkjum sem fæst svipað í svona einhverskonar drug store. Nema á Íslandi eru drug store vörur ekki til vegna þess að það sem er kallað drug store út í þessum stóra heimi er selt á Íslandi sem high end.
5. What cosmetic brands have you always wanted to try but still haven't? 
Stila, Makeup Geek, Color Pop, Jeffree Star cosmetics og mörg fleiri.
6. Favorite drugstore brand?
Maybilline, Gosh og Loreal.
7. Do you wear fake eyelashes? 
 Við sérstök tilefni já. Annar nota ég þau ekki hversdagslega.
8. Is there any kind of makeup you can't leave the house without?
Nei ég fer alveg ómáluð út ef mig langar þess.
9. What is your most cherised beauty product?
Ég veit það ekki. Það er svo margt sem mér þykkir vænnt um en ætli það séu ekki burstarnir mínir. Tími ekki henda þeim þótt ég sé hætt að nóta eitthverja.
10. How often do you shop for makeup? Do you like to pick up an item here and there or get lots of goodies at once?
Allvega í hverjum mánuði og yfirleitt er ég að kaupa einn og einn hlut.
11. Do you have a "beauty budget" or you spend freely?
Ég er ekki með neinn budget ég kaupi bara það sem mig vanntar eða langar í þegar ég hef efni á því.
12. What type of product do you buy the most of?
Burstar, farði, varalitir og gerfiaugnhár. Er svona helsta sem ég kaupi mér reglulega.
13. Do you like trying new skincare products or do you keep a certain routine?
Ég elska að prófa nýjar vörur og bara ekkert nýjar sumar náttúrulega eru ekki nýjar heldur hef ég þá bara ekki prófað þær. Elska prófa eitthvað nýtt sem er þá nýtt fyrir mér.
14. Favorite bath and body brand?
Ætli það sé ekki Body Shop, Nip+Fab og Elizabeth Arden.
15. If you could only buy from one brand, which brand would you choose?
Gosh. Ódýrt, það er fullt til í þessu merki og eru góðar vörur.
16. 5 Favorite Beauty Gurus?
Jeffree Star, Nikkie Tutorials, Tanya Burr, Carli Byble og Heiðdís hjá haustfjörð.is.
Og nei þetta er ekki í neinni sérstakri röð.
17. How many hair products do you use on a typical day?
Tvær. Bed Head After Party og SP Luxe Oil frá Wella.
18. What do you love about makeup?
Allt. Hvernig er hægt að leika sér endalaust með liti og aðferðir og áferðir og allt það sem fylgir þessu.
19. What foundation do you use?
L'oreal Infallible Pro mate foundation og líka hinn sem er ekki mattur.
20.Could you ever leave the house without any makeup on?
Já hiklaust. Mér líður vel alveg jafn vel með farða og án farða.



-Anna Margrért Sveins.

Katsljós þátturinn og netmiðlar

Já það hafa eflaust allir heyrt eða séð þennann blessaða Kastljósþátt.
En það sem mig langar helst að tala um er allavega ekki að setja samasem merki á milli beauty,lífstýls bloggar og átröskunar.
Ætla ekki einu sinni að fara út í það málefni.

En það sem mig langar að tala um er að beauty snapparar og bloggarar fá allt gefins og fá borgað fyrir það að blogga eða snappa.
Ég fæ það ekki.
Ég hef einu sinni fengið eitthvað gefins og sagði frá því.
Ég bloggaði um það og fékk ekki greitt fyrir mig einfaldlega vildi það.
Vildi dreyfa ánægju minni á vörunni sem ég fékk.
Engar af mínum færslum eru kostaðar á nokkurnn hátt.
Ég blogg til þess að dreyfa ánægju minni á hlutunum og segja ykkur frá hvað mér finnst vera inn og hvað sé út.
En í flestum ef ekki öllu tilfellum eru mínar færslur jákvæðar.
Netmiðlarnir voru on fire eftir þennann þátt hjá Katljósinu og fannst mér gott að vita ég var ekki ein með mína skoðun, en flestar færslur eða flestir snapparar sem ég las eða horfði á voru allir sammála mér, og margir deildu mjög persónulegum hlutum út frá því.

Ég kaupi allar mínar snyrtivörur sjálf og það er það sem ég hef áhuga á.
En ég vil gera þetta að mínu starfi að starfa sem förðunarfræðingur er eitthvað sem mig hef langað til svo lengi. En fyrst og fremst vil ég safna í reynslubankann og safna í kitið mitt.
Ég vil líka að sem flestir fylgja mér á sem flestum netmiðlum sem ég er á.
Sem eru snapchat, Instagram, Facebook og hérna.

Ég ætla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra en ég bara vildi koma þessu frá mér.
En núna er ég komin úr netmiðlafríi og er með dagskrá hvað ég geri hvenær.
Auðvitað koma alltaf eitthverjar ritstíflur og hugmynda leysi en ég hef svo marga netmiðla og bloggara og snappara sem gefa mér hugmyndir og innblástur.


- Anna Margrét Sveins.

Þessi færsla er ekki kostuð



fimmtudagur, 11. febrúar 2016

Vefverslana blaður+ smá óskalisti

Eins og öruglega flestir vita þá hafa snyrtivöru vefverslanir orðnar alveg slatta margar,
og finnst mér flestar vera farnar að selja það sama.
Ef þið eruð að spá í fjárfesta í snyrtivöru án djóks skoðið allar síðurnar sem selja þá vöru sem ykkur langar í.
Farið yfir verðin og kaupið það ódýrasta.
Jafnvel skoða erlendar vefverslanir.
Þótt það taki einhvern tíma að fá það til landsins og kostar einhvernn toll og gjöld
þá er það stundum þess virði.

Ég var til dæmis að skoða um daginn afþví mig langar svo í þessa
Anastasia Beverly Hills Pro brow palletu. 
Nola.is er með hana á sérpönntunar lista hjá sér síðast þegar ég vissi og kostar næstum því 25 þúsund.
Svo fór ég að skoða erlendar síður og fann hana á Beauty Bay og þar kostar hún 109,40 evrur sem eru rúmlega 15.700 íslenskar krónur.
Svo fann ég hana líka á Cult beauty og hún kostar þar 90 pund sem eru rúmlega 16.500 íslenskar krónur.
Inná Cult beauty þá er frí sending ef það er verslað fyrir meira en 50 pund og á Beauty Bay er frí sending ef það er verslað fyrir meira en 20 evrur minnir mig.
Það er margt þarna sem hægt er að versla og er mikið úrval af vörum sem fást ekki hérna á Íslandi og það eru mikið af fríðindum sem fylgja því að versla á til dæmis Cult beauty. 
Til dæmis: Ef þú verslar fyrir eitthvað ákveðið mikið þá geturu valið þér einhverja ,,prufu'' af vöru. Þá er það einhverskonar vara alveg sama hvað það er sem þú getur valið þér sem er í prufu stærð, eins og til dæms Solid beautyblender sápan.
Ég hef ekki kynnt mér það hvort það séu einhverjar svona prufur sem fylgja sendingum á beauty bay. 
En svona þarf maður helst að gera alveg sama hvort það séu erlendar eða íslenskar netverslanir að skoða verðin og bera saman. 
Inná báðum síðunum fæst primer frá Stila cosmetics sem mig langar svo í.
Þessi primer er búin að vera á óskalistanum í svo laangann tíma.
Hann bæði preppar húðina fyrir farða og er litaleiðréttari.
Inná cult beauty kostar hann 24 pund eða 4400 íslenskar.
Inná beautybay kostar hann 29,20 evrur eða 4200 íslenskar.
Niðurstaða Beauty Bay er ódýrara en Cult Beaty.


Morphe fæst líka á báðum síðunum og eru stóru augnskugga palleturnar að kosta kannski 3000 krónur íslenskar.
En hérna heima á Fotia.is kosta þær frá 4990- 5990 kr.
Á óskalistanum er 35O, 35K og 35P.
35P

35O

35K

Þær eru svo rosalega fallegar, ég dey!

Ætla að benda á nokkrar íslenskar vefverslanir


Það eru eflaust til margar fleiri en þessar eru svona sem mig dettur í hug núna.

Fleira er það ekki að sinni.

Minni ykkur á
Snapchat annzy93
Instagram annamsmua
Facebook

- Anna Margrét Sveins.



miðvikudagur, 10. febrúar 2016

Uppáhalds í janúar














Það er nú langt um liðið og ég veit og þið vitið það er vegna þess

að talvan mín var í viðgerð og hún er loksins komin aftur.
Mér finnst það ekkert of seint að gera uppáhalds í janúar þar sem það er nú bara 11. í dag.

En mig langar samt að segja frá því að það er komin mánuður  síðan ég drap í síðustu sígarettunni!!
WHOOWHOO fyrir mér!!

En allavega það eru nokkrar  vörur sem ég tel vera uppáhalds í janúar mánuði sem mig langar að segja ykkur frá.


Loréal Infallible 24H All day stay fresh foundation.
Ég á Pro matte farðann og hann er algjört uppáhald og þessi er ekki síðri.
Hann þekur mjög vel og heldur raka allann tímann.
Hann er góður núna í þessum kulda allavega fyrir mína húð.
Ég nota lit númer 130 og ég held að hann sé annaðhvort ljósasti eða næst ljósasti.
Sumum finnst vera of yfirgnæfandi lygt af honum en mér finnst hún góð þannig hún pirrar mig ekkert.
Hann fær allavega A+ í einkun frá mér.


Milani Baked blush í litnum Luminoso er öruglega einn vinsælasti kynaliturinn í dag.
Allavega er hann á milli tannanna á öllum kvennlegnum og körlum jafnvel líka á Íslandi í dag.
Þegar mig langaði að eignast hann hvað mest þá var hann alltaf uppseldur á Haustfjörð.is.
Hann er með fallegu shimmeri og er bara ótrúlega fallegur.
Ferskjubleikur og er svona rosalega látlaus eitthvað og er mjög henntugur ef maður vill ekki of áberandi kynnar. Til dæmis með flotta og mikla augnförðun.

Maybelline Eyestudio lasting drama gel eyeliner.
Þessi elska kom inn í líf mitt eftir að ég sá Elísubet Ormslev sem sér um hárvörur.is snapið vera að nota hann. Hún talar svo oft um hann að ég varð að kaupa hann.
Hann er no joke betri en MAC gel eyelinerinn.
Jáb ég sagði það drugstore vara er betri en MAC!
Sorry en svona er lífið stundum.
En hann endist endalaust á og er frábær að vinna með og ásetningin er hrikalega mjúk og góð.
Helsti plúsinn við hann sem ég get ekki sagt um MAC eyelinerinn er að þessi molnar ekki, þessi endist endalaust á og hann er aaaalveg svartur og helst alveg svartur allann tímann sem maður er með hann.

Já ég á mér tvo uppáhalds gel eyelinera í janúar.
Þessi vita allir um!
Þegar maður segir Inglot þá hugsa allir um þennann.
Þennann varð ég að eignast eftir að hafa séð alla beautysnapar og heyra alla tala um hann.
Ég bara varð krakkar, ég varð!!
Hann er frááábær í vatnslínuna.
Endist endalaust þar.
Það hafa eflaust allir lennt í því á ævinni að vera að fara eitthvað fínt eða bara almennt í daglegu lífi og þurfa alltaf að vera með svarta eyeliner blýantinn í veskinu, er þaggi eða??
Júb allir kannast við þetta vandamál.
Þetta vandamál er ekki vandamál lengur fyrir mig allavega eftir að ég eignaðist þessa elsku!!
Ó hvað ég var í miklu himnaríki þegar ég prófaði hann fyrst.
Og já ég veit ég talaði um hann í uppáhalds 2015 hann er bara svo frábær.
Næst ætla ég að fjárfesta í þeim hvíta hann er númer 76.

Inglot Makeup fixer.
Andlitið hreyfist ekki!
Það eru til eflaust fleiri seting sprey sem eru betri en mér finnst þetta frábært.
Farðinn og allt andlitið endist vel og lengi.
Ég nota það líka til þess að festa glimmer.
Þar sem að duraline var ekki til þegar ég ætlaði að kaupa það þá mældi stelpan hjá Inglot með þessu
Tvær flugur í einu höggi sleignar þar.
Það var ódýrt og er gott.
Svo að ég mæli með. 
En ég á eftir að prufa mig betur áfram í svona seting spreyjum,

Síðast en ekki síst eru það uppáhalds augnhárin.
Þau eru frá Social eyes.
Góð í ásetningu og eru bara svo falleg.
Varð reyndar fyrir því leiðinlega atviki ég var búin að nota þau sem Patrekur gaf mér í jólagjöf einungis einu sinni og þau slitnuðu *sad face* 
En ég hafði samband við hana Heiðdísi á haustfjörð.is og hún var nú ekki lengi að redda mér öðrum.
Hún fær mikið klapp frá mér og algjörlega 5 stjörnur fyrir frábæra þjónustu.
Topp manneksja með meiru, tjekkið á henni á haustfjord.is á snap og á facebook 
og farið bara á haustfjord.is heimasíðuna fuuuullt af flottum og fallegu vörurm á góðu verði.

En fleira er það ekki að sinni.
Ég lofa fleiri færslum núna þar sem talvan er komin aftur til mín.

Fylgið mér á eftirfarandi stöðum:
Instagram:  annamsmua
Snapchat:  annzy93
og á Facebook


- Anna Margrét Sveins.